Þjálfunarpakkar
Æfing og Næring
Fyrir þau sem vilja léttast, byggja upp vöðvamassa og bæta heilsu sína.
Fitutap
Vöðvauppbygging
Styrktaraukning
Aukin orka og heilsa
Betri venjur
Almenn líkamsrækt
Styrkur, Vöðvauppbygging og næring
Fyrir þau sem vilja verða bæði sterkari og vöðvameiri með aukna áherslu á grunnlyfturnar: réttstöðulyfta, bekkpressa, hnébeygja og axlarpressa
Markviss styrktarþjálfun
Vöðvauppbygging
Grunnlyftur ásamt almennum æfingum
Fitutap og/eða vöðvaaukning
Aukin orka og heilsa ásamt betri venjum.
KraftlyftingaRþjálfun
Fyrir þau sem vilja hámarka árangur í réttstöðulyftu, bekkpressu, hnébeygju og axlarpressu með sérsniðnu æfingarplani sem uppfærist í fjögurra vikna lotum.
Sérhæft kraftlyftingarplan
Þyngdarstýring og lotuskipting
Regluleg prófun á styrk
Tæknivinna í grunnlyftum
Keppnisundirbúningur (ef óskað er)
-
Í T3X appinu getur þú haft stöðug samskipti við mig um allt sem tengist þjálfuninni.
-
Þú færð aðsniðið æfingarplan að þinni getu og þörfum.
-
Þú færð sérsniðið næringarplan að þér og ef það er eitthvað í því sem hentar ekki eða þú borðar ekki þá breytum við og betrumbætum.
-
Einn dag í viku ert þú með ákveðinn dag sem þú þarft að fylla út stöðumat/check-in í appinu svo ég geti aðstoðað þig sem best.
-
Í appinu fylgja fjöldamörg æfingarmyndbönd við margar æfingar og einnig vill ég að þú takir upp lyftur þínar ef þú hefur tök á og sendir mér svo ég geti kennt og leiðbeint þér betur hvernig þú getur hámarkað tækni, öryggi og einnig getu.
Það sem er innifalið
Verðskrá
Flestir byrja á 3 mánuðum, Það er yfirleitt þar sem við náum fyrstu alvöru framförum og byggjum upp góða rútínu.
Árangursmyndir
næring ein og sér
Það sem Viðskiptavinir hafa að segja
“Þegar ég skráði mig í þjálfun hjá Theodóri vissi ég ekki alveg hvað ég var að gera - nema það að ég þurfti að breyta til og fá smá spark í rassinn (í elskulegri merkingu)
Ég hafði litla sem enga reynslu af líkamsrækt, en Theodór útskýrði allt á mannamáli, með ótrúlegri ró, klókindum og jákvæðni sem er bara smitandi.
Hann hjálpaði mér líka að taka mataræðið í gegn - án þess að dæma mig fyrir að elska kolvetni eins og þau séu fjölskyldumeðlimir.
Þjálfunin með honum er blanda af fróðleik, stuðningi og smá húmor sem gerir allt ferlið miklu skemmtilegra (já, jafnvel þegar maður svitnar á sálarstigi)
Theodór er klár, skilningsríkur og hreinlega frábær þjálfari. Það að skrá mig til hans var ekki bara góð ákvörðun - þetta var upgrade á lífstíl!”
— Helgi Eiríksson“Theodór er alveg frábær þjálfari, ótrúlega jákvæður, hjálpsamur og alltaf til í að svara spurningum. Hann setti upp skemmtilegt æfingar prógram og matarplan sem var fjölbreytt og gott.
Alltaf mikið pepp í viku check in og heldur manni á réttri braut. Get ekki mælt nógu mikið með þjálfun hjá honum. Takk kærlega fyrir hjálpina.”
— Sigurjón Ingvar“Ég byrjaði að vinna með Theodóri í maí 2025, þá vó ég 84kg (166cm á hæð) Í morgun (28.08.2025) var þyngdin mín komin niður í 69,6kg.
Theodór er bókstaflega besti þjálfari sem ég gæti óskað mér, Theodór setti upp frábært matarplan fyrir mig og lagaði það alltaf að mínum matarvenjum og þörfum. Hann veit nákvæmlega hvað þarf til að ná árangri og hefur ótrúlega þolinmæði og fagmennsku.
Á þessum fjórum mánuðum hefur hann fylgst með hverju smátriði og þegar ég lenti á “plato” breytti hann planinu strax og þyngdin fór aftur að lækka. Hann er alltaf til staðar, alltaf hvetjandi og gefur manni trú á að þetta sé hægt.
Sjálfsögðu þarf maður að leggja sitt af mörkum: ganga meira, hreyfa sig og sleppa sætindum :) en með Theodór hliðiná er allt ferlið miklu auðveldara og skemmtilegra. Hann er ótrúlega jákvæður, kurteis og hvetjandi. Ég get með sanni sagt að hann er fullkominn þjálfari.”
— SaraSkrá MIG í þjálfun
Ef ég vissi það sem ég veit núna þegar ég byrjaði að lyfta hefði ég komist nær markmiðum mínum margfalt hraðar og einnig öruggar. Reynsla og þekking er mikilvæg og mig langar ekkert meira en að miðla henni áfram til að hjálpa.
Styrkjast, byggja upp vöðva og minnka fitu eru markmið sem ég er sérfræðingur í að ná og get hjálpað þér að ná líka.