Hver er Theodór Már?

Frá því að geta ekki tekið eina armbeygju 16 ára í að verða í 3.sæti í Sterkasti Maður Íslands 28 ára og svo yfir í að landa 3.sæti á Íslandsmótinu í Vaxtarrækt 30 ára, þá hef ég yfir áratuga reynslu af vöðva og styrktaruppbyggingu og einnig fitutapi með áherslu á að viðhalda og byggja upp vöðva.

Hafnfirðingur, Kópavogsbúi, Sandgerðingur eða Suðurnesjamaður, ég flutti um stanslaust í æsku minni en í grunninn er ég bara Íslendingur en bý núna aftur í Hafnarfirði með þrem kisum mínum, þeim Bríet, Eið og Drogo (Skýrður eftir Khal Drogo) og er mikill dýravinur.

Á yngri árum æfði ég handbolta, sund, hnefaleika og körfubolta og var bikarmeistari með drengjaflokk hjá Njarðvík 2011 en fann mig samt best í líkamræktarstöðinni hjá lóðunum þar sem ég bar einn ábyrgð á mínum eigin árangri og enginn annar. “Þú færð út úr því það sem þú leggur í það” er sögn sem ég lærði hratt og eitthvað sem ég lærði að beita svo í margskonar þáttum í lífi mínu.

Ég er einnig maður með áhuga á ýmsu, önnur áhugamál mín eru fjallgöngur, anime, búa til margmiðlunarefni, fatnaður, leiklistir, list og smá hlaup nýlega en brenni fyrst og fremst fyrir því að skemmta og hjálpa fólki, og þá sérstaklega við að komast nær markmiðum sínum á sem skilvirkasta og öruggasta máta.

Líkamsræktin var mín leið til að byggja upp sjálfan mig og sjálfstraust eftir mörg ár af einelti sem ég varð fyrir eftir að ég flutti til Sandgerðis árið 2005. Frá 6.bekk til 10.bekk var mér mest alla daga strítt fyrir að vera öðruvísi, sama hvort það var eitthvað sem ég sagði sem breyttist svo yfir í að verða strítt alla daga vegna hæð minnar. Ég var auðvelt skotmark sem vildi ekki berjast til baka og það skildi eftir ör sem tók tíma og sjálfsvinnu til að gróa.

Við 14 ára aldur náði myrkrið hápunkti og upplifði ég mig sem ekkert nema mengun og fyrirhöfn í lífi annarra, barðist við mikið þunglyndi og hugsunum um að líf annarra væri betra ef ég væri ekki til. Eitthvað sem enginn á að upplifa, hvað þá 14 ára strákur.

Körfubolti og líkamsrækt bjargaði mér úr því myrki og hjálpaði mér að byrja að byggja mig upp.

Sjálfsvinnan hófst með að byrja í ræktinni og reyna að byggja upp vöðva. Ég hafði alltaf litið roslaega mikið upp til Arnold Schwarzeneggers, Sylvester Stallone og þeirra hasarmynda hetja og vildi líta á sjálfan mig jafn stórt og ég leit á þá.

Eftir að ég greip fyrst í stálið var ekki aftur snúið og varð ég heltekinn af árangrinum sem ég sá. Það tók langan tíma að byggja upp vöðva á svona langan líkama en allt ferlið var og er ennþá svo sannarlega þess virði.

Lóðin blésu í mig nýju lífi og urðu að grunninum og dyrunum að svo ótrúlega mörgu sem ég hef gert í lífinu.

Árangur

3.Sæti sterkasti maður á íslandi 2022

Eftir rosalega baráttu endaði ég að ná mínu fyrsta pallsæti á Sterkasti Maður á Íslandi mótinu 2022.

3.sæti sterkasti maður íslands 2023

Mögulega besta mót aflraunaferlis míns en ég var hársbreidd frá því að ná öðru sætinu en endaði með 3.sæti sem ég var mjög stoltur af líka.

2. sæti Norðurlandsjakinn 2022

Hörð og erfið keppni á Norðurlandinu þar sem maður ýtti líkamanum alveg að yrstu brún og endaði með að ég landaði silfri og góður vinur hann Vilius Jokuzys tók gullið.

3.sæti static monsters Ísland 2023

Keppni í tveim greinum, 16’ tommu öxulstöng réttstöðulyfta og drumbalyfta, bæði á max þyngd. Lyfti 385kg í réttstöðulyftunni og 152.5kg í drumbalyftuni sem landaði mér 3.sæti á eftir þeim Óskari Pétur Hafstein og Hilmari Erni Jónssyni

3.sæti íslandsmótið í vaxtarrækt +85kg 2025

Ég skóf af mér 50kg á 11 mánuðum og steig upp á svið 125kg að líkamsþyngd og keppti á Íslandsmótinu í Vaxtarrækt landaði 3.sæti. Gífurlega skemmtilega reynsla og eitthvað sem ég sé ekki eftir að hafa prófað.

1.sæti Thors Power Challenge Strongman réttstöðulyfta 2021

Ég tók 340kg í strongman/aflrauna réttstöðulyftu á Thor’s Power Challenge mótinu 2021 og tók fyrsta sæti.

Bestu & sterkustu lyftur

í gegnum árin

Réttstöðulyfta

Ég lyfti 350kg í réttstöðulyftu/deadlift í Thor’s Power Challenge í desember 2022

Réttstöðulyfta á reps

Ég lyfti 320kg með fimm endurtekningum á Sterkasti Maður Íslands 2023 mótinu.

Hnébeygja

Ég lyfti 280kg í hnébeygju í desember 2022.

Drumbalyfta

Ég lyfti 152.5kg í drumbalyftu/log press á Static Monsters mótinu í október 2023

Atlas Steinar

Á Sterkasti Maður Íslands 2023 mótinu varð ég fjórði Íslendingurinn í sögunni til að lyfta 202kg risa atlas steinunum í runu eða á eftir öðrum steinum í sömu greininni.

Bekkpressa

Ég lyfti 150kg 3 reps í bekkpressu árið 2022

Skrá MIG í þjálfun

Ef ég vissi það sem ég veit núna þegar ég byrjaði að lyfta hefði ég komist nær markmiðum mínum margfalt hraðar og einnig öruggar. Reynsla og þekking er mikilvæg og mig langar ekkert meira en að miðla henni áfram til að hjálpa.

Styrkjast, byggja upp vöðva og minnka fitu eru markmið sem ég er sérfræðingur í að ná og get hjálpað þér að ná líka.