Skilmálar

Almennt

Það er mitt markmið að viðskipti þín við mig séu ánægjuleg. Til að stuðla að því mæli ég með því að þú kynnir þér skilmála
mína. Það mun fyrirbyggja allan misskilning og stuðla að góðum samskiptum
í framtíðinni.

Þjónusta.

Ég veiti þjónustu á sviði upplýsinga og
aðgangs að vefsvæði fyrir einstaklinga. Um er að ræða aðgang að hugbúnaði sem
heldur utan um æfingarplön, matardagbækur, samskipti við þjálfara, fræðsluefni
og persónuupplýsingar notenda. Þjónustuni er ætlað að veita notendum
aðhald og aðstoða þá við að ná bættum árangri og betri heilsu.

Réttur til að hætta við pantanir

Ég áskil mér rétt til að hætta við
pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta
að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Ég áskil mér rétt til að
segja upp áskrift án endurgreiðslu ef samband milli kúnna og þjálfara er ekki
að ganga.

Notendur

Með hugtakinu „notendur“ í hvaða falli sem er,
fleirtölu eða eintölu, er átt við þá sem nýtir sér þjónustu mína. Allir
þeir sem nýta sér þjónustu mína verða að lesa skilmála þessa og samþykkja
við skráningu á vefsvæði. Notendur fá aðgang að innri vef og bera
þeir ábyrgð á að tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna, þ.e. notendanafns og
lykilorðs. Notendum er óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með öðrum aðilum
eða veita öðrum aðgang að innri vefinn hjá þjálfun minni. Ég ber enga ábyrgð á
hvers kyns tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af því að aðrir aðilar
komist yfir aðgangsupplýsingar notenda. Verði notandi þess var að óviðkomandi
aðili hefur komist yfir aðgangsupplýsingar hans að innra vef þjálfunarsíðunar, þá
skal hann samstundis láta mig vita. Notandi ber fulla ábyrgð á því að
upplýsa mig um heilsukvilla, ofnæmi og annað sem skipt getur máli við
nýtingu á þjónustunni.

Verð og áskrift

Verð fyrir
þjónustu mína er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni.
Ég sem þjálfari áskil mér rétt til að breyta verðum . Þegar þú hefur
samþykkt skilmála og skráð þig í þjálfun þá er kominn á samningur milli mín og notanda. Samningar eru með binditíma sem hafa verið gefnir upp t.d.
3 mánuðir +, 4 mánuðir+ eða 6 mánuðir + og framlengjast þeir ekki sjálfkrafa að
binditíma loknum nema þjálfari hafi sagt annað. Notendum er þó ávallt frjálst
að óska eftir framlengingu. Greiði notandi ekki innan 10 daga frá gjalddaga þá
lokast á aðgang hans að innri vef þjálfunarsíðu minnar. Það er á ábyrgð notanda að réttar
greiðsluupplýsingar séu gefnar við skráningu. Ef aðili hefur valið kortaleið og
kort nást ekki að verða rukkuð sem hafa verið gerðir samningar um fer þetta í
innheimtu ferli hjá Inkasso og fer úr höndummínum ef aðilar lenda í
innheimtu þá bera þeir ábyrgð á að ræða við Inkasso um frekari upplýsingar.

Uppsögn samnings

Þegar
skilmálar hafa verið samþykktir er kominn á samningur um kaup á þjónustu hjá mér þá er ekki hægt að segja upp þjálfun/þjónustu. Á móti framlengist
binditími ekki sjálfkrafa nema þjálfari hafi gefið aðila upp annað. Fari
notandi ekki eftir skilmálum þessum þá áskil ég mér rétt til að segja
samningi um þjónustu upp án nokkurs fyrirvara eða endurgreiðslna.

Takmörkun ábyrgðar

Ég ber ekki ábyrgð á:

Meiðslum,
slysum, veikindum, mistökum eða öðru sem kann að leiða til skaðabótaskyldu eða
refsiskyldu. Notandi nýtir þjónustu mína á eigin ábyrgð. 

Óþægindum eða tjóni, beinu eða óbeinu, vegna bilana í
tölvu- eða hugbúnaðarkerfum.

Tjóni eða óþægindum sem kunna að hljótast af því hvers
konar misnotkun eða mistökum við meðferð upplýsinga sem fara á milli
þjónustuveitanda og notanda. Hér getur t.d. átt við ef þriðji aðili brýst inn í
tölvukerfi þjónustuveitanda míns eða tölvukerfi míns/notenda og
stelur eða misnotar upplýsingar á annan hátt.

Tjóni eða óþægindum vegna annara atvika sem talin eru
óviðráðanleg (e. force majeure).

Neinum upplýsingum eða gögnum sem notandi sendir til mín í gegnum innri vefinn/appið. Ég skuldbind mig til að
vernda upplýsingar og gögn notenda eftir fremsta megni.

Höfunda- og hugverkaréttur

Innihald þjálfunarsíðunar að meðtöldu öllu
efni og innihaldi innra nets míns, er varið samkvæmt höfundaréttar- og
vörumerkjalögum á Íslandi og þeim lögum sem kunna að gilda á öðrum stöðum. Allt
efni og innihald á síðu minni/appi er eign mín. Með því að gerast notandi er
aðila veittur aðgangur að efni og innihaldi og honum heimilað að
nota það í samræmi við skilmála þessa. Notanda er með öllu óheimilt að afrita
efni og innihald sem aðilar fá hjá mér, nema til eigin nota. Með efni og
innihaldi á þjálfunarsíðu minni er átt við allt sem er þar að staðaldri ásamt
upplýsingum á innri vef/appið, auk efnis sem notanda kann að vera sent í
tengslum við persónulegar ráðleggingar með æfingar eða annað. Öll dreifing,
afritun eða endurútgáfa á efni og/eða innihaldi míns er óheimil.

Persónuvernd

Hluti af því að nýta sér þjónustu mína felst í
því að veita mér upplýsingar um þig. Þær upplýsingar sem þú veitir kunna að
vera persónuupplýsingar og viðkvæmar persónuupplýsingar. Ástæðan fyrir því af
hverju þú veitir okkur þessar upplýsingar er einföld, með því getum við veitt
þér mun betri þjónustu. Það er alltaf undir þig komið hversu miklar upplýsingar
þú kýst að veita okkur.

Ég heiti fullum trúnaði um þær upplýsingar
sem þú veitir mér. Ég mun gæta þinna upplýsinga eftir bestu getu. Um
meðferð persónuupplýsinga við viðskiptin fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um
persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Þær
upplýsingar sem ég kann að safna um þig og óska eftir að þú veitir mér eru:

Nafn,
heimilsfang og aðrar tengiliðaupplýsingar.

Kennitala.

Samskipti þín
við mig.

Æfingaplön sem
þú færð aðgang og önnur sambærileg gögn.

Mælingar.

Myndir.

Persónulegar
upplýsingar um þig og þitt nánasta umhverfi, vinnu fjölskyldu og fleira. 

Heilsufarsupplýsingar.

Ég mun hvorki safna né vinna persónulegar upplýsingar um þig í öðrum tilgangi en þeim
að veita þér góða þjónustu. Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki þitt
fyrir veitingu persónuupplýsinga og eftir atvikum fengið þeim eytt.

Upplýsingar um
kreditkortið þitt eru aðeins vistaðar á meðan viðskiptin fara fram og eru
samþykkt í kerfinu. Rapyd geymir kortaupplýsingar þínar í öruggum kerfum sínum,
en ekki á greiðslusíðunni sjálfri.

Um leið og
pöntunin er staðfest og þú færð staðfestinguna í hendur verður öllum
upplýsingum um kortið eytt úr kerfinu. Kortaupplýsingar þínar eru öruggar á
meðan ferlinu stendur. Hið sama gildir hvort sem þú ert skráður notandi eða
ekki.

Fyrir frekari
upplýsingar um öruggi greiðslu þinnar vísum við á heimasíðu Rapyd.

Breytingar

Ég áskil mér rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og þjónustu án
fyrirvara.

Ágreiningur

Rísi
ágreiningur um viðskiptin sem verður ekki leystur með öðrum hætti en aðkomu
dómstóla skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar

Ef þú þarft nánari upplýsingar eða vilt koma að
ábendingum eða kvörtunum, sendu mér þá fyrirspurn á theodormartv@gmail.com og ég svara þér eins fljótt og auðið er.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 17.03.2025